Smáralind
Smáralind í Kópavogi er stærsta verslunarmiðstöð Íslands og eitt umfangsmesta verslunar- og þjónustumannvirki sem reist hefur verið hér á landi. Byggingin var hönnuð í samstarfi við bresku arkitekta- og verkfræðistofuna Building Design Partnership (BDP). Smáralind var formlega opnuð 10. október 2001 og markaði tímamót í uppbyggingu verslunar- og þjónustuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Byggingin er um 62.000 fermetrar að stærð og hýsir fjölbreytta verslun, veitingastarfsemi, afþreyingu og þjónustu. Arkitektúr hennar einkennist af björtum göngugötum og opnum sameiginlegum svæðum sem tengja saman ólíka starfsemi. Áhersla var lögð á skýrt skipulag, greiða umferð gesta og að skapa aðlaðandi verslunarumhverfi sem gæti þróast og aðlagast breyttum þörfum með tímanum. Samstarf íslensku og bresku arkitektastofanna sameinaði alþjóðlega sérþekkingu á hönnun stórra verslunarmiðstöðva og staðbundna þekkingu á íslenskum aðstæðum, byggingariðnaði og regluverki. Smáralind er þannig mikilvægur áfangi í sögu ASK arkitekta. Helstu áfangar í sögu byggingarinnar 1997 Hönnun og þróun 2000 Framkvæmdir hefjast. Byggingarframkvæmdir hófust um mitt ár 2000. Ístak var aðalverktaki og áætlaður byggingartími um 15 mánuðir. Verkefnið var ein umfangsmesta einstaka byggingarframkvæmd landsins á þeim tíma. 2001 Smáralind opnuð. Þann 10. október 2001 klukkan 10:10 var Smáralind formlega opnuð. 2002 Viðurkenning fyrir arkitektúr. BDP og Arkitektar Skógarhlíð (ASK arkitektar) hlutu umhverfisviðurkenningu Kópavogsbæjar fyrir hönnun Smáralindar í flokki atvinnuhúsnæðis.







