Þjóðarhöllin
ASK arkitektar hafa, í samstarfi við norsku arkitektastofuna LPO og fleiri, unnið samkeppnisútboð um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal. Tillagan leggur áherslu á að skapa fallegt, aðgengilegt og lifandi mannvirki sem þjónar bæði íþróttum, menningu og fjölbreyttum viðburðum til framtíðar. Þjóðarhöllin verður nýtt kennileiti í Laugardal og mikilvæg viðbót við þá starfsemi sem fyrir er á svæðinu. Í tillögunni er lögð áhersla á skýra tengingu við umhverfið, góða upplifun gesta og sveigjanleika í notkun, þannig að húsið geti þjónað ólíkum viðburðum og hópum með fjölbreyttum hætti. Sérstaða tillögunnar birtist meðal annars í klæðningu hússins, sem unnin er í samstarfi við listamanninn Finnboga Pétursson. Þar móta hljóðbylgur úr fimmundinni bylgjur í yfirborði hússins og skapa sterka tengingu milli byggingarlistar, hljóðs og listar. Með þessu fær byggingin einstakt yfirbragð þar sem form, efni og merking vinna saman. ASK arkitektar er 45 ára arkitektastofa sem hefur komið að hönnun fjölda íþróttamannvirkja á Íslandi. Sú reynsla nýtist vel í þessu mikilvæga verkefni, þar sem saman þurfa að fara fagleg þekking, skýr framtíðarsýn og skilningur á íslensku samhengi. Við erum afar stolt af því að fá tækifæri til að taka þátt í að móta nýja Þjóðarhöll. Þetta er verkefni sem hefur mikla þýðingu fyrir íslenskt íþrótta- og menningarlíf og við hlökkum til að vinna það áfram í góðu samstarfi við verkkaupa, samstarfsaðila og notendur hússins. Tillagan er unnin í samstarfi ÍAV, ASK arkitekta, LPO arkitekta, Landhönnun, Cowi og Finnboga Péturssonar.








